Konfekt.is

 



Vefhönnun: Tónaflóð


 


Gæðasúkkulaði

 
Þegar ég valdi blönduna fyrir HR Criollo 67 vildi ég að útkoman yrði gæðasúkkulaði með jöfnu, mjúku súkkulaðibragði auk dálítils ávaxtabragðs til að lyfta því upp.

Ég valdi því kakóbaunir frá uppáhalds svæðunum mínum: Venesúela í Suður-Ameríku þar sem bestu kakóekrur í heimi eru og Madagaskar fyrir utan Afríku en eyjan er þekkt fyrir kakóbaunir með ríku ávaxtabragði. Ég valdi úr bestu uppskerum á hvorum stað og nota eingöngu Criollo-baunir því þær gefa mjög sterkt súkkulaðibragð og eru ekki beiskar. Criollo-baunir eru eingöngu notaðar í gæðasúkkulaði og eru innan við 10% af allri uppskeru kakóbauna í heiminum.

Ég er mjög ánægður með útkomuna og býð þér að koma og smakka afurðina í verslunum mínum.

Hafliði Ragnarsson
Chocolatier

Meira


 




Á boðstólum eru þrjár stærðir af glæsilegum gjafaöskjum úr tré sem innihalda fjórar konfekttegundir.

>> PANTANIR
 


Sao Thome Ganache

70% Sao Thome súkkulaði hjúpað 57% dökku súkkulaði
 


Praliné

Hnetu og möndlu praliné hjúpað mjólkursúkkulaði toppað með krókant
 


Te Ganache

64% dökkt súkkulaði kryddað með Earl grey blue te hjúpað 57% dökku súkkulaði


Pistasíu Ganache

Hvítt súkkulaði, pistasía og tonka pipar hjúpað hvítu súkkulaði toppað með pistasíu


Passionfruit Ganache

Mjólkursúkkulaði og ástaraldin kryddað
með rommi hjúpað mjólkursúkkulaði


Anis Ganache

64% dökkt súkkulaði kryddað með anis hjúpað 57% dökku súkkulaði